Go to content
Um Dropa

Heilsusamlegt líferni

Ferðalag Dropa hófst í Bolungarvík, sjávarbæ á Norðvesturlandi, staðsett á Vestfjörðum. Þar má finna eitt elsta sjávarútvegssamfélag Íslands.

 

Fyrir utan fallega náttúru, einkennist Ísland einnig af heilbrigðu lífi, langlífi og sjálfbærni. Það eru þær íslensku rætur sem eru inngrónar í alla þætti vörumerkis Dropa.

Vestfirðirnir veita okkur ein hreinustu fiskimið sem hægt er að finna í Atlantshafinu með hreinasta stofn gæðafisks allt um kring. Þar vinnum við í sátt við náttúruna og sjómenn á staðnum tryggja stöðugt framboð á ferskum þorski. Fagmennska og ástríða þeirra skín í gegnum hverja og eina vöru sem við framleiðum.

1000 ára gömul hefð

Hreinn íslenskur dropi

Dropi þorskalýsi er eingöngu kaldunnið til að varðveita alla náttúrulega eiginleika olíunnar. Lágt hitastig er notað allt framleiðsluferlið og fer hitinn aldrei yfir 42°C. Við þetta lága hitastig viðhaldast hrein, náttúruleg vítamín og næringarefni og því flokkast Dropi sem jómfrúarolía og hráfæði. Olían inniheldur hrein og náttúruleg vítamín A og D, ásamt Omega-3 og öðrum fitusýrum. Engum gerviefnum eða viðbættum vítamínum er bætt við olíuna.

Þessi aðferð var þróuð af víkingum og hefur verið þróuð á síðustu 1000 árum og gerir okkur kleift að framleiða hreint, hágæða þorskalýsi.

Lesa meira um hreina fiskiolíu.

Sagan okkar

Saga Dropa hófst með þremur metnaðarfullum konum sem stofnuðu True Westfjords ehf., framleiðslufyrirtæki Dropa, árið 2012. Þær kynntust í MBA námi í Háskóla Íslands þar sem hugmyndin um að miðla þessari aldagömlu íslensku arfleifð í útskriftarverkefni kviknaði. 

Upphafleg hugmynd þeirra var þróuð og prófuð áfram í samvinnu við Matís, sem leiddi til þess að Dropi kom á markað árið 2015. Síðan þá hefur hugmynd stofnenda verið betrumbætt, endurbætt og gerð aðgengileg fyrir þúsundir viðskiptavina, innanlands sem erlendis. 

Sjómennirnir okkar

Árla morguns fara sjómenn í Bolungarvík út á haf á bátum sínum með beitningarbala. Sumir með bala sem beittir eru í landi daginn áður, aðrir með bala sem beittir eru í vélum um borð. Eftir veiði dagsins halda bátarnir í heimahöfn þar sem ferskum aflanum er landað. Fiskurinn er verkaður og seldur á fiskmarkaði, þaðan sem við kaupum lifrina. Við fáum hana svo afhenta ferska innan dagsins. Afurðin er því fersk allt vinnsluferlið.

Sambandið við sjómennina er okkur mjög dýrmætt, þeir eru okkar máttarstólpar og það er þeim að þakka að við fáum að framleiða þessa hágæða afurð með því að tryggja að við höfum aðgang að ferskasta, hreinasta og næringarríkasta fiskinum í N-Atlantshafi. Öll þeirra vinna gerir okkur kleift að varðveita hefðbundnar íslenskar aðferðir við framleiðslu á þorskalýsi.

Finndu þína flösku

Við hjá Dropa höfum ekkert að fela. Hver einasta flaska inniheldur QR kóða sem gerir þér kleift að rekja innihald flöskunnar og kynnast sjómönnunum sem veiddu fiskinn í sem notaður var til þess að gera olíuna í þinni flösku. Finndu þína flösku.